Samkvæmt lögum Almannatengslafélags Íslands geta allir gerst aðilar að félaginu sem starfa við almannatengsl eða hafa menntun á sviði almannatengsla og/eða sinna kennslu í faginu. Stjórn er þó heimilt að gera undantekningu í sérstökum tilvikum. Árgjaldið er 3.500 krónur.
Til þess að sækja um aðild er einfaldast að senda tölvupóst til Andrésar Jónssonar, formanni félagsins. Í tölvupóstinum þarf að tilgreina nafn umsækjanda, kennitölu, starfsheiti og vinnustað. Netfang Andrésar er formadur@almannatengsl.is
Félagar í Almannatengslafélagi Íslands vinna margvísleg störf og kalla sig oft mismunandi starfsheitum - upplýsingafulltrúa, almannatengla, ráðgjafa og svo framvegis. Sumir vinna á sérstökum almannatengslastofum, aðrir fyrir einstök fyrirtæki, félög eða stofnanir. Enn aðrir vinna sjálfstætt. Talið er að starfandi almannatenglar á Íslandi séu vel yfir þrjú hundruð talsins.