Almannatengslafélag Íslands hefur sett sér siðareglur sem siðanefnd sér um að séu haldnar í heiðri. Hver sem telur að félagi hafi brotið siðareglurnar, og á hagsmuna að gæta, getur kært viðkomandi með skriflegum hætti til siðanefndar.
Siðareglurnar eru samdar með hliðsjón af siðareglum Alþjóðastofnunar almannatengsla (IPR).
Meðal atriða sem kveðið er á um í siðareglum er að félagar skulu virða í starfi hagsmuni almennings, ástunda persónuleg og fagleg heilindi í starfi sínu og leitast ávalt við að gefa raunsanna mynd af þeim sem unnið er fyrir.
Þá er kveðið á um framkomu gagnvart viðskiptavinum og vinnuveitendum. Félagi á að sýna trúnað og sanngirni, og ekki taka að sér verkefni fyrir beina keppinauta viðskiptavinar án vitundar viðkomandi.