Kæru félagar,
Föstudaginn 12. júní næstkomandi stendur Almannatengslafélag Íslands fyrir heimsókn á fréttastofu Ríkisútvarpsins. Tilgangurinn er að gefa félögum í AÍ kost á að kynna sér starfshætti fréttastofunnar og efla skilning almannatengla á starfi fréttamanna útvarps og sjónvarps og öfugt.
Óðinn Jónsson fréttastjóri tekur á móti okkur í Efstaleiti 1 kl.15:00. Byrjað verður á stuttri skoðunarferð um húsnæði fréttastofunnar og heimsókninni lýkur svo með óformlegu spjalli þar sem okkur gefst tækifæri til að leggja spurningar fyrir yfirmenn fréttastofunnar.
Við þökkum Óðni Jónssyni kærlega fyrir að bjóða okkur í heimsókn.
Vinsamlega skráið ykkur fyrirfram með því að senda póst á almannatengsl@almannatengsl.is svo við getum látið Óðinn og félaga vita hvað þeir eigi von á mörgum.
F.h. stjórnar AÍ
Andrés Jónsson
s. 615-0110