Ný stjórn og ný siðanefnd var kosin á aðalfundi Almannatengslafélags Íslands föstudaginn 17. apríl sl.

Formaður var kjörinn Andrés Jónsson, Hjördís Árnadóttir varaformaður, Svanhvít Friðriksdóttir ritari, Lovísa Lilliendahl gjaldkeri og G. Pétur Matthíasson meðstjórnandi.

Í siðanefnd Almannatengslafélags Íslands voru kosin þau:  Árdís Sigurðardóttir, Þorsteinn G. Gunnarsson, Ólafur Hauksson, Helga Guðrún Jónasdóttir og Magnea Guðmundsdóttir.

Fjörugur umræður sköpuðust á fundinum um hlutverk almannatengla, ímynd þeirra og samskipti við fjölmiðla. Fráfarandi stjórn lagði til að fyrsti heiðursfélagi Almannatengslafélagsins yrði Jón Hákon Magnússon, stofnandi KOM. Fundurinn samþykkti útnefninguna einróma og var Jóni Hákoni afhent formleg viðurkenning þess efnis á fundinum.

Almannatengslafélag Íslands var stofnað þann 27. september 2001 og er tilgangur félagsins að mynda samstarfsvettvang fyrir þá sem starfa við almannatengslum á Íslandi, í því skyni að vinna að fræðslumálum er tengjast greininni og ýmsum hagsmunamálum.

Félagar í Almannatengslafélagi Íslands vinna margvísleg störf og starfsheitin eru mismunandi, t.d. upplýsingafulltrúi, almannatengill, ráðgjafi og svo framvegis. Sumir vinna á sérstökum almannatenglastofum, aðrir fyrir einstök fyrirtæki, félög eða stofnanir. Enn aðrir vinna sjálfstætt. Talið er að almannatenglar á Íslandi séu nú hátt í fjögur hundruð og hefur þeim fjölgað mikið á síðustu árum.

Almannatengsl eru stunduð víða í samfélaginu, meðal annars hjá hinu opinbera, fyrirtækjum, hagsmunasamtökum, félögum og svo ráðgjafafyrirtækjum sem sérhæfa sig í almannatengslum. Þau geta tekið á sig ólíka mynd, jafnvel innan sama fyrirtækisins. Almannatengsl felast til dæmis í upplýsingagjöf og margháttuðum samskiptum við almenning, fjölmiðla, hluthafa, fjárfesta, starfsmenn og aðra hópa, sem og ýmis konar ráðgjöf og stefnumótun.

Framundan eru ýmsir viðburðir hjá félaginu. Þann  19. maí næstkomandi stendur félagið að ráðstefnu í Salnum í Kópavogi með hinum ýmsu samtökum atvinnulífsins, um neikvæða ímynd Íslands á erlendum vettvangi og hvernig megi snúa henni við. Andrés Jónsson, formaður AÍ, mun flytja erindi um samskipti við erlenda fjölmiða, skipulag ímyndarvinnu og mögulegt hlutverk erlendra PR-fyrirtækja í að fá umfjöllun um endurreisn Íslands.