Aðalfundur Almannatengslafélags Íslands (AÍ) verður haldinn mánudaginn 28. júní kl.12:15 í Turninum í Kópavogi. Gert er ráð fyrir að fundinum verði lokið um kl.13:30.
Föstudaginn 12. júní næstkomandi stendur Almannatengslafélag Íslands fyrir heimsókn á fréttastofu Ríkisútvarpsins. Tilgangurinn er að gefa félögum í AÍ kost á að kynna sér starfshætti fréttastofunnar og efla skilning almannatengla á starfi fréttamanna útvarps og sjónvarps og öfugt.
Ný stjórn og ný siðanefnd var kosin á aðalfundi Almannatengslafélags Íslands föstudaginn 17. apríl sl. Formaður var kjörinn Andrés Jónsson, Hjördís Árnadóttir varaformaður, Svanhvít Friðriksdóttir ritari, Lovísa Lilliendahl gjaldkeri og G. Pétur Matthíasson meðstjórnandi.
Aðalfundur Almannatengslafélags Íslands (AÍ) verður haldinn klukkan 12.15, föstudaginn 17. apríl n.k. í Bertels-stofu á Thorvaldsen Bar í Austurstræti. Gert er ráð fyrir að fundinum verði lokið um kl.13:30. Að loknum aðalfundarstörfum flytur Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri KOM, erindi um stöðu almannatengsla á Íslandi.
Almannatengslafélaginu hefur borist bréf frá Rakeli Ármannsdóttur, nema í almannatengslum við Hogskolen í Hedmark í Noregi. Hún er að leita sér að leiðbeinanda sem getur liðsinnt henni við skrif BA-ritgerðar sinnar, sem fjallar um ímyndarvanda Íslands í kjölfar hruns bankanna.
Starfshópur Almannatengslafélags Íslands telur brýnt að sem fyrst verði samið við alþjóðlegt PR fyrirtæki sem getur tryggt samhæfða skilaboðagerð og aðgerðir erlendis. Enginn vegur er fyrir ráðuneyti eða aðgerðahópa hér heima að hafa þá staðbundnu yfirsýn sem þarf til að taka réttar ákvarðanir við að koma sjónarmiðum Íslendinga á framfæri erlendis.
Í morgun kynntu starfsmenn forsætis- og utanríkisráðuneyta fyrir félagsmönnum í AÍ þær aðgerðir sem ráðuneytin beita til að miðla upplýsingum, einkum þó til útlanda, um fjármálakrísuna.
Í morgun kynntu starfsmenn forsætis- og utanríkisráðuneyta fyrir félagsmönnum í AÍ þær aðgerðir sem ráðuneytin beita til að miðla upplýsingum, einkum þó til útlanda, um fjármálakrísuna.
Í október verður Endurmenntun Háskóla Íslands með tveggja daga námskeið um alþjóðleg viðhorf í neytendahegðun sem Dr. Árni Arnþórsson sér um. Námskeiðið er ætlað markaðsstjórum, starfsfólki auglýsingastofa, almannatenglum og öðrum sem áhuga hafa á neytendahegðun. Félagar í AÍ eiga erindi á þetta námskeið og er boðinn 15% afsláttur af námskeiðsgjaldinu.
Hver er ímynd Íslands í dag? Er staðan sterk eða veik? Hvaða atriði skipta máli í uppbyggingu og hvar liggja tækifærin? Af hverju láta sum íslensk fyrirtæki þess ekki getið að þau séu íslensk þegar þau kynna sig erlendis? Er það með ráðum gert? Hefur ímynd Íslands beðið hnekki undanfarið? Hefur hún jafnvel orðið fyrir árásum og hvernig ber að verjast slíku?
Heimsóknum Almannatengslafélagi Íslands til fjölmiðla þessa lands er hvergi nærri lokið. Stærsta dagblað þjóðarinnar - Fréttablaðið - er næst í röðinni, en Jón Kaldal, annar ritstjóra Fréttablaðsins, mun ljúka upp dyrum blaðsins fyrir félaga í Almannatengslafélagi Íslands, fimmtudaginn 8. maí kl. 11:15.
Þriðjudaginn 11. mars munu forsvarsmenn fréttastofu Stöðvar 2 taka á móti Almannatengslafélagi Íslands. Í heimsókninni verður félagsmönnum AÍ sýnt húsnæði fréttastofunnar, verkferlar og áherslur kynntar og gefið tækifæri til þess að spjalla við fréttastjóra og vaktstjóra.
Árið fer vel af stað hjá Almannatengslafélagi Íslands og stefnir nýkjörin stjórn að því að starfið verði líflegt á árinu. Nú strax í janúar – nánar tiltekið þann 31. janúar kl. 16:00 – ætlar Morgunblaðið að opna dyr sínar fyrir félögum AÍ og kynna starfsemi fjölmiðilsins.
Ný stjórn og ný siðanefnd var kosin á aðalfundi Almannatengslafélags Íslands þann 19. nóvember sl. Formaður var kjörinn Ómar R. Valdimarsson, Magnea Guðmundsdóttir varaformaður, Þorsteinn G. Gunnarsson ritari, Andrés Jónsson gjaldkeri og Sigurður Sigurðarson meðstjórnandi.
Haustmálþing Íslandsdeildar Norræna stjórnsýslusambandsins (NAF) í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og forsætisráðuneytið verður haldið í Norræna húsinu, fimmtudaginn 16. nóvember 2006.
Benedikt Karl Valdimarsson hefur verið skipaður framkvæmdastjóri hjá írska almannatengslafyrirtækinu Bracken Public Relations.
Ávefinn er komin grein eftir Björn Þór Vilhjálmsson, sem ber heitið viðskiptavæðing sjálfsins.
Nýkjörin stjórn AÍ hittist á sínum fyrsta fundi fimmtudaginn 30. mars. Á fundinum var lagði stjórin drög að starfsemi ársins og skipti með sér verkum.
Aðalfundur AÍ, sem haldin var á Grand Hótel þann 23. mars, fór vel fram. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum flutti Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands, fróðlegt erindi um siðareglur BÍ og siðferði blaðamanna.
Aðalfundur Almannatengslafélags Íslands (AÍ) verður haldinn klukkan 17.15, fimmtudaginn 23. mars n.k. á Grand Hótel.
Þorsteinn G. Gunnarsson, félagi í AÍ og ráðgjafi hjá KOM, flutti um nýliðna helgi fyrirlestur um almannatengsl og áfallastjórnun fyrir nemendur í viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri.
Guðjón Pálsson, almannatengslaráðgjafi, framkvæmdastjóri GCI-GREY PR Íslandi og stjórnarmaður í Almannatengslafélagi Íslands, heldur fyrirlestur á ráðstefnu Ímark um mörkun.
Afar góður rómur var gerður af fyrirlestri Sigmundar Ernis Rúnarssonar, fréttastjóra NFS, á hádegisverðarfundi AÍ sem haldinn var á Grand Hótel í dag.
Markaðurinn birti í dag stutt viðtal við Jón Hákon Magnússon, formann AÍ, um almannatengs.
Fræðslufundur Almannatengslafélags Íslands (AÍ) miðvikudaginn 7. desember kl 12:00 í Hvammi á Grand Hótel.
Morgunblaðið birti í dag eftirfarandi athugasemd frá ráðgjöfum KOM, vegna umræðna um auglýsingar og PR brellur.
Heiðrún Ýrr Júlíusdóttir var nýlega ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs hjá almannatengslafyrirtækinu Plexus Consulting Group í Washington DC.
AP almannatengsl ehf. hafa gert samstarfssamning við alþjóðlega fyrirtækið Edelman, sem er eitt stærsta sjálfstæða almannatengslafyrirtæki í heimi.
Í PR Week, breska vikuritinu um almannatengs,birtist reglulega yfirlit ,,Reputation Monitor" fyrirtækja og Baugur er hástökkvari vikunnar í PR-Week.
Almannatengslafélag Íslands býður nýjan félaga velkominn í hópinn.
Aldrei hefur mæting á fræðslufund AÍ verið jafn góð og í dag, þar sem fjallað var um okkur sjálf, íslenska almannatengla, starfsemi okkar, fagmennsku, menntun og viðhorf til starfsins.
Eftir góðan félagsfund fyrr í vikunni hafa þrír almannatenglar sótt um aðild að AÍ. Þetta eru Árni Hallgrímsson, AP almannatengsl, Bolli Valgarðsson GCI og Hulda Bjarnadóttir KOM.
Á fræðslufundi AÍ, á Grand Hótel í hádeginu fimmtudaginn 10. mars nk. mun Thelma Jónsdóttir, kynnir niðurstöður rannsóknar sem hún gerði meðal félaga í Almannatengslafélagi Íslands og notaði við lokaritgerð sína í meistaranámi í Publizistik und Kommunikationswissenschaften við Freie Universitaet í Berlín síðastliðið vor.
Spurningin hér að ofan er yfirskirft greinar eftir Guðjón Pálsson, sem sett hefur verið hér á vefinn. í greininni veltir Guðjón fyrir sér virði vörumerkja og því hvort nýr vefur AÍ sér vörumerki sem geti auðgað virði sitt og þróast sem stefnumótandi samskiptatæki.
Fræðslufundur AÍ sem haldinn var í dag, var óvenjulega líflegur. Helga Guðrún Jónasdóttir, kynningarstjóri B&L og varaformaður AÍ flutti erindi ...
Fyrsti fræðslufundur Almannatengslafélags Íslands (AÍ) á nýju starfsári verður haldinn miðvikudaginn 26. janúar nk. kl. 12:00 á Grand Hóteli.
Þórir Guðmundsson, félagi í AÍ og sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands, er um þessar mundir staddur á hamfarasvæðunum í Asíu ásamt fréttamanni Stöðvar 2.
Almannatengslaráðgjafarnir Bragi V. Bergmann og Ásgrímur Örn Hallgrímsson hjá FREMRI kynningarþjónustu á Akureyri hafa gengið í Almannatengslafélag Íslands
Það eru engin ný sannindi að jákvæð og neikvæð umfjöllun fjölmiðla um fyrirtæki getur haft bein áhrif á afkomu þeirra og velgegni. Fyrirtæki sem stöðugt fá jákvæða umfjöllun vegna viðskiptavildar ganga mun betur en þau fyrirtæki sem passa ekki upp á orðspor sitt og ímynd.
Mjög hefur færst í aukanna að KOM vinni fjölþjóðleg verkefni í samstafi við erlend almannatengslafyrirtæki. Nýjasta dæmið er aðkoma ráðgjafa KOM að kaupum danska málningarframleiðandans Flügger á Hörpu Sjöfn.
Aðalfundur AÍ var haldinn þriðjudaginn 23. nóvember s.l. á Grand hótel. Alls sóttu 11 félagar fundinn, en félagsmenn eru nú rétt rúmlega 50 manns og fer fjölgandi.
Benedikt Valdimarsson, félagi í Almannatengslafélagi Íslands og starfsmaður Bracken PR í Dublin á Írlandi, vann nýverið æðstu verðlaun sem veitt eru fyrir almannatengsl þar í landi, Public Relations Consultants Association Award for Excellence in Public Relations.
Aðalfundur AÍ var haldinn þriðjudaginn 23. nóvember s.l. á Grand hótel. Alls sóttu 11 félagar fundinn, en félagsmenn eru nú rétt rúmlega 50 manns og fer fjölgandi.
Fyrsti fræðslufundur AÍ á þessum vetri var haldinn á Grand Hótel 3. nóvember s.l. Fyrirlesari var Ólafur Teitur Guðnason, blaðamaður sem fjallaði um vinnubrögð fjölmiðlafólks undir yfirskriftinni „Í fréttum er þetta verst“.